Allt tekur enda, líka hin árlega íslenska bjórhátíð, það er bara þannig. Síðasti dagurinn var frábær, undirritaður var bara nokkuð heill heilsu sem er plús á svona hátíð. Það var ekki eins troðið og hina dagana, líklega af því að einhverjir láu heima með sárt ennið eftir gærdaginn?
‘Eg ákvað að taka bara einn stíl fyrir síðasta kvöldið, IPAen það varð svo sem úr að ég fór í einn og einn súrbjórinnog auðvitað imperial stout líka til að enda gott kvöld! Malbygg átti dálítið sviðið um stund þegar þeir hófu legendary bottle pour af Brewhahaá slaginu kl 18:00. Það hafði meira að segja myndast smá röð við básinn þeirra 10 mín í. Auðvitað varð maður að taka einn imperial stout þá.
Tired Hands héldu svo áfram að gleðja undirritaðan með frábærum IPAog verulega vönduðum Saison. DIPAinn frá KCBC var flottur en flottastur IPA bjóra var Orange Crush frá Finback, verulega næs NEIPA með blóðappelsínum og mandarínu, menn voru greinilega sammála því hann kláraðist fljótt. Aslin var reyndar með álíka magnaðan DIPA og svo var Imperial Stoutinn þeirra svakalegur, Mexican Hot Chocolate og líklega sá besti í sínum flokki þetta kvöld. Orðið á götunni var dálítið að Aslin hefði neglt þessa hátíð með frábærum bjór alla dagana. Other Half voru svo líka með ofsalega ljúfan NEIPA en kölschinnþeirra var skrítinn, með ananas ofl og minnti bara á frostpinna úr fortíðinni, ekki gott. Menn voru margir ósammála mér hér.
Lamplighter frá Boston voru líka með solid lineup alla hátíðina, ekkert mindblowing en bara allt gott en í gær voru þeir með alveg magnaðan belgískan quadrupelþroskaður á púrtvís tunnum, klikkað stöff. Ég dundaði mér aðeins á Omnom básnum í gær en þeir voru með svakalegt súkkulaði, 100% súkkulaði. það var vægast sagt svakalegt og alls ekki allra, beiskt eins og ég veit ekki hvað. Þetta súkkulaði kom vel út með quadrupelnum frá Lamplighter.
Íslensku brugghúsin voru á sínum stað, sumt alveg ágætt, annað skrítið og jafnvel vont en sumt ansi gott. T.d. smakkaði ég mjög góðan bláberja súrbjór frá Brothers Brewing, ég er oftast ekkert spenntur fyrir ketilsýrðum bjór en þessi vara mjög nettur og myndi sóma sér vel í dósum eða flöskum. DIPAinn frá Ölverk var líka dálítið spes en gekk alveg upp, mjög þurr með saison geri, um að gera að prófa hann ef þú átt leið framhjá Hveragerði. Smiðjan var svo með NEIPAsem ég verð að segja að var bara alls ekkert galinn, ég myndi alveg fá mér hann aftur, frábært hvað frumraunir þeirra á stóru græjunum komu fínt út á þessari hátíð
Það var svo eitt sem ég gleymdi að nefna og ég vona að menn hafi ekki farið illa út úr því en alla hátíðardagana var hægt að rölta upp á eins konar svalir innanhúss og fá sér húðflúr, spurning hvort einhverjiur hafi vaknað upp með nýtt og skemmtilegt húðflúr sem þeir mundu ekki eftir að hafa fengið sár? Skemmtilegt.
En já nú er þetta bara búið, heilt ár í næstu gleði en lífið heldur áfram held ég, fullt af bjór framundan frá okkar frábæru íslensku brugghúsum og líka spennandi nano/Lamplighter collab sem ég fjalla um síðar.
B&M mun svo taka alla bjórhátíðina saman á næstu dögum. Skál í bili!
Það verður að viðurkennast að dagur tvö er aldrei eins sjarmerandi og dagur 1 á bjórhátíð enda flestir dálítið rykugir og maginn í rugli eftir gærdaginn. Bjórinn var samt á sínum stað í kvöld og flæddi út um allt vel og vandlega, Omnom og Ostarnir voru á sínum stað og tveir matarvagnar fyrir utan. Svo var plötusnúður á staðnum með dúndrandi techno og house músík sem ég fílaði reyndar mjög en margir töluðu um að það hafi verið of hátt stillt og ekki rétt tónlist. Það verður svo sem aldrei hægt að gleðja alla. Þrengslin voru áfram að trufla undirritaðan hins vegar, það var í raun varla hægt að rölta milli bása fyrir fólki. Kannski er það bara ég sem er viðkvæmur sérstaklega á degi tvö? En verður líklega að teljast jákvætt fyrir hátíðina þegar vel er mætt.
Ef við skoðum bjórinn þá er það mín tilfinning að súrbjórinnsé dálítið ríkjandi á þessari hátíð, þegar maður spyr fólk hvað menn mæla með þá var það alltaf súrbjór eða imperial stout sem nefndur var til sögunnar. Ekkert IPA eins og á síðasta ári þar sem haze æðið var alls ráðandi. Súrbjórarnir eru svo sannarlega víða og gæðin eru rosaleg. Fonta Flora var með tvo virkilega flotta í kvöld og Black Project með geggjað bottle pour, wild alesem legið hefur á whisky tunnum og svo blandað í nektarínum annars vegar og ferskjum hins vegar. Þessir báðir voru geggjaðir og líklega það besta í kvöld í súrbjórunum. Brekeriet var reyndar með alveg frábæran súrbjór líka, Vild Krikon sem er súrbjór með Damson ávexti (eitthvað plómu dæmi) og svo þroskaður á French Wine Foeders í 10 mánuði. Borg frumsýndi svo Rauðhettu og Úlfinn í kvöld en það er samstarfsverkefni Brekeriet og Borgar. Þetta er í raun blanda af Rauðhettusem er red wild ale og svo Úlfisem er IPAþannig að úr verður wild IPA ekki satt? Þessi bjór er mjög skemmtilegur og maður veit bara ekki alveg hvar maður á að staðsetja hann, fyrir mér er þetta meira wild ale en IPA alla vega.
Dugges var svo með imperial stout sem margir voru að tala um, banana toffee chocolate stout, en þó ég sé hrifinn af bakkelsisbjór þá var ég ekki að fíla þennan . Of væminn og skrítinn bara. Other Half var með mjög flottan imperial stout sem var dálítið umtalaður, mér fannst hann ágætur en ekkert í líkingu við monsterið frá Malbygg í gær, Brewhaha. Malbygg strákarnir ætla mögulega að bjóða Brewhaha á morgun en hann er annars kominn í vínbúðir í mjög takmörkuðu magni. Malbygg var með helvíti skemmtilegan brut IPA sem kom mjög vel út. Brut þýðir í raun að hann er eins og freyðivínið, gerjaður til fullst þannig að allur sykur eða því sem næst er gerjaður úr bjórnum. Tilvalinn fyrir þá sem eru t.d. á keto fæði. Smiðjan brugghús var líka með brut IPA, sá var heldur sætari en Malbygg útgáfan en samt skemmtilegur, mætti kannski þurrhumla aðeins lengur?
Tired Hands hélt áfram að heilla í kvöld, þeir voru með frábæra IPA bjóra og svo Saisonsem mikið var talað um, flestir sem ég hitti mæltu með honum alla vega. Geggjaður, Rustic Pentagram, súrbjór með mango og amarillo humlum, bruggaður með hveitimalti og látinn þroskast á french oak fouders! Verulega gott. Tired Hands hefur til þessa verið með fullt hús stiga. Geggjað brugghús.
Ég fór annars ekkert í NYC brugghúsin að þessu sinni nema í stoutinn frá OH. Ég heyrði menn hins vegar tala vel um KCBC bjórinn, þeir voru með geggjaðan DIPAvíst. Á morgun held ég að ég hvíli súrbjórinn og vinni meira í IPA og imp stout. Sjáumst þá!
Það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum sem rambar inn á Bjór & Matur að framundan er einn stærsti bjórviðburður ársins hér á fróni, en ef svo er þá má lesa nánar um komandi árlegu bjórhátíð á KEX hér. Ég hef einblínt dálítið á erlendu brugghúsin til þessa sem er svo sem ekkert undarlegt, það er erfitt að komast yfir bjór frá mörgum þeirra og því magnað að geta smakkað bjór frá þeim hér heima á klakanum og í raun algjörlega einstakt tækifæri í svona litlu samfélagi sem Ísland er. Það er hins vegar fjöldi af íslenskum brugghúsum á hátíðinni í ár og sum voru í fyrra líka. Mig langar að rúlla aðeins í gegnum þau hér.
Staðfest eru eftirfarandi, Borg Brugghús, Malbygg, RVK Brewing Co., The Brothers Brewery, Smiðjan Brugghús, IDE Brugghús, Lady Brewing, Álfur, Og Natura, Ægir Brugghús, Mono, Ölgerðin og Vífilfell. Það gætu auðvitað fleiri boðað komu sína áður fram líða stundir. KEX Brewing verður auðvitað á staðnum líka.
Borg Brugghús
Ég þarf ekki að fjalla mikið um þessa snillinga en þeir hafa verið að marg sanna sig síðustu ár með mögnuðum bjórum af ýmsum toga. Nú undanfarið hafa þeir fylgt tíðarandanum og fært okkur hverja safabombuna (NEIPA) á fætur annari en ég held að óhætt sé að segja að hinir skýjuðu New England IPA bjórar hafa verið gríðarlega vinsælir hér heima sem og erlendis síðustu misseri. En Borg kann sannarlega að brugga annað en NEIPA en þeir sýndu okkur það með skemmtilegu twisti í lok árs með frábærum bjór af gerðinni wild ale sem bar nafnið Esjaog markar upphaf af súrbjóralínu vonandi frá þeim snillingum. Það verður spennandi að sjá hvað þeir tefla fram á bjórhátíð í ár.
Malbygg
Bergur, Andri og Ingi eru bjórperrar af líf og sál en þeir eru gaurarnir á bak við Malbygg. Ég hef fjallað um þá nokkrum sinnum áður og ætla ég ekki að skrifa hér einhverjar langlokur en hér má lesa nánar um Malbygg. Malbygg sem hóf göngu sína á síðasta ári hefur á sínum stutta líftíma stimplað sig rækilega inn í íslenska bjórmenningu með frábærum og aðgengilegum bjór og vil ég meina að hér sé eitt besta brugghús landsins um þessar mundir. Þessir guttar munu sko sannarlega mæta með gott á bjórhátíð. Fyrir þau ykkar sem ekki geta beðið þá hvet ég ykkur til að taka forskot á sæluna en þeir eru með alla vega 5 tegundir til sölu í vínbúðum landsins, ma Galaxy IPA sem er frábær um þessar mundir.
RVK Brewing Co.
Hér er enn eitt brugghúsið sem hóf göngu sína á síðasta ári og hefur verið að gera frábæra hluti á árinu. Það eru þeir Sigurður Snorra og Valli brugg sem sjá um að semja bjórinn sem menn geta notið í fyrstu formlegu bruggstofuborgarinnar. RVK Brewing hefur verið að gera alls konar skemmtilegt síðustu misserin, ss bakkelsisbjór með snúðum frá Brauð & Co, flippaðan morgunverðar stout með cocopuffs, höfrum, pönnukökum ofl og svo var jólabjórinn þeirra ansi jólalegur með heilu jólatré og með því í bruggferlinu. Já það er óhætt að segja að RVK Brewing sé bæði lifandi og skemmtilegt brugghús sem þorir að fara skrítnar leiðir. Það besta er að útkoman er oftast helvíti góð. Hvað fáum við að smakka á bjórfest? Mögulega tunnuþroskaða útgáfu af Co & Co? Reyndar þykir mér líklegt að það verði meira í súrum dúr hjá þeim í anda Þorrans.
The Brothers Brewery
Strákarnir frá Eyjum hafa verið að gera fína hluti síðustu ár. Lengi vel var erfitt að smakka nokkuð frá þeim nema í Eyjum en nú er bjórinn þeirra farinn að detta inn á bari borgarinnar hér og þar og á flöskur í vínbúðirnar. Bjórinn þeirra er þægilegur og aldrei neinar öfgar í neinu. Það besta frá Brothers til þessa að mati B&M var páskabjórinn þeirra í fyrra sem var alveg frábær mjólkur stout sem smellpassaði með páskaeggjum frá Hafliða súkkulaðikarli. Brothers virðast vera helvíti flinkir í þessum stíl því hinn bjórinn þeirra sem var í miklu uppáhaldi hjá okkur var jólabjórinn þeirra í ár, Leppursem líka var milk stout. Hver veit nema við fáum enn einn magnaða mjólkur stoutinn á hátíðinni í ár?
Smiðjan Brugghús
B&M hefur verið að fylgjast með fæðingu Smiðjunnar í Vík á síðasta ári og jafnvel lengur. Vonir stóðu til þess á síðustu bjórfest að fá að smakka frá þeim bjór en það náðist ekki því þau eru ekki enn farin að brugga sinn eigin bjór. Brugghúsið er hins vegar klárt og brewpöbbinn þeirra líka þar sem er hægt að gæða sér á ýmsu spennandi úr eldhúsinu og drekka bjór frá bestu brugghúsum landsisn af krana. Bjór & Matur þekkir annars lítið til þeirra Þórey og Svenna sem reka staðinn en við erum samt spennt að smakka bjórinn þeirra þegar þar að kemur. Það var mikill metnaður í póstum þeirra á instagram við tilurð brugghússins sem kveikti áhuga okkar á þeim. B&M stefnir á að heimsækja Smiðjuna á árinu en líklega verður fyrsti bjórinn frá þeim fyrst smakkaður á komandi Bjórhátíð. Við vonum svo sannarlega að þau standist væntingar.
Vífilfell og Ölgerðina þekkja allir og mun ég ekki fjalla frekar um þau hér
Álfur
Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekkert til þeirra nema að þeir virðast hafa byrjað að brugga á síðasta ári og að þeir eða réttara þau virðast hafa gaman af því að brugga bjór úr kartöflum! Hérmá lesa umfjöllun um Álf á mbl.
IDE Bruggús
IDE hefur verið að brugga fyrir almennan markað síðan 2016 held ég. Þegar ég tók þá tali síðast fyrir ansi löngu síðan voru þeir farandsbruggarar, þ.e.a.s ekki með eigið brugghús heldur brugga hér og þar sem þeir fá inn eins og algengt er, t.d. hóf Mikkeller sinn feril þannig. Það eru 3 félagar sem standa þarna að baki og eins og algengt er hófst þetta allt í heimabruggi fyrir nokkrum árum síðan. Síðar unnu þeir til verðlauna í Bjórkeppni FÁGUnnar árið 2014, en undirritaður var einmitt dómari í þeirri keppni, einn af mörgum reyndar. Ég man eftir bjórnum svei mér þá, ylliblóma IPA. Þetta var þeim mikil hvatning og Brugghúsið var svo formlega stofnað 2016. Síðar gáfu þeir út sinn fyrsta bjór, nefnilega Vinur Vors og Ylliblóma , IPA með ylliblómum sem fékkst m.a. á Mikkeller & Friends, Skúla Craft Bar , Skál og víðar. Þetta var stórfínn IPA verð ég að segja. Ég hef þó lítið smakkað frá þeim eftir þetta. Það verður gaman að tékka á þeim á bjórhátíð og ná langþráðu spjalli við þá yfir góðum bjór.
Af Bjórhátíð 2018
Lady Brewing
Lady er fyrsta og eina brugghús landsins sem rekið er af einungis konum, þeim Þóreyu Björku og Ragnheiði Axel en eins og margir vita þá var bjórgerð til forna einungis í höndum kvenna þannig að þetta er dálítið back to the roots. Það er í raun ekki svo langt síðan karlar fóru að fikta við bjórgerð. Fyrsti bjórinn frá Lady, First Lady var virkilega flottur, heiðarlegur IPA, ekkert grugg, ekkert frútt, bara humlaður vel jafnvægisstilltur gamaldags amerískur IPA. Ég hef smakkað nokkra bjóra frá þeim stöllum, allt flottir bjórar en ég verð að segja, First Lady er sá besti. Reyndar verður það að segjast að nýlega hef ég lítið verið að skoða bjórinn frá þeim…það er bara svo mikið að gerast að maður nær ekki yfir þetta allt. Það er einmitt þess vegna sem bjórhátíðar eru svo sniðugar. Lady er líkt og IDE, sígunabrugg og síðast þegar ég vissi brugguðu þær bjór sinn hjá Ægi Brugghús.
Mono
Mono er eitt ef þessum nýju bruggsmiðjum frá 2018 og þeir voru með á síðustu bjórhátíð en eftir það hefur lítið til þeirra spurst. 2/3 þeirra Maggi og Villi eru hins vegar á fullu að ferja í okkur bjór á Session Craft Bar sem þeir eiga og reka. Það verður vonandi meira að frétta frá þeim á þessu ári en eitt er víst, þessir menn kunna bjór, þeir eru bjórnördar í húð og hár og þess vegna viljum við smakka meira frá þeim. Byrjum á Bjórfest 2019!
Og Natura
Bj&M hefur lítið skoðað Og Natura en þeir eru eitt af mörgum nýju bjórgerðum landsins. Þeir gefa sig út fyrir að brugga bjór úr íslenskum hráefnum á borð við krækiber og bláber. Þeir gera reyndar líka vín og allt á eins náttúrlegan máta og hægt er. Erum við kannski komin hér með fyrstu náttúruvíngerð landsins? Pæling. Fyrsti bjór þeirra er Liljar Már 6.5% bláberja öl sem hægt er að nálgast í Vínbúðunum. Þetta er líklega eitt forvitnilegasta brugghús Íslands um þessar myndir myndi ég segja. Skoðumetta!
Ægir Brugghús
Ægir Brugghús út á Granda hefur verið í gangi núna í ein tvö eða þrjú ár en þar á bæ er það Óli Þorvaldz sem ræður ríkjum. Óli er mikill öðlings piltur og þægilegur heim að sækja, hann lofar meira að segja hinum og þessum að brugga hjá sér bjór og það hafa nokkur íslensk brugghús nýtt sér ss Lady, KEX Brewing ofl. Ægir er eitt af þeim brugghúsum sem B&M ætlar að taka vel út á þessu ári en við höfum gert allt of lítið af því að prófa bjórinn þeirra til þessa. Óli gaf okkur um jólin þessa mögnuðu flösku (sjá mynd) af bjór sem ber nafnið Hó Hó Hólísjitt sem glöggir menn átta sig á að er jólabjór. Bjórinn er um 8.8% tunnuþroskaður imperial brown ale með kakónibbum og appelsínum, þorskaður í 9 mán. á Woodford Reserve bourbun ámum og var tappað á flöskur í afar, afar takmörkuðu upplagi og ef marka má miðann var flaskan okkar númer 21 af 60! Þessi bjór er eins geggjaður og hann hljómar, jább svona er það bara.
KEX Brewing
KEX Brewing verður líka á staðnum í einhverri mynd en segja má að þeir séu í raun gestgjafarnir á bjórhátíð. Hinni hjá KEX Brewing var síðast þegar ég spjallaði við hann ekki búinn að negla neitt niður en hver veit hvað þeir lauma á krana fyrir okkur á hátíðinni. Þeir hafa jú verið að brugga bjór með hinum og þessum brugghúsum um alla veröld allt síðasta ár. Ég er persónulega spenntur fyrir samstarfi þeirra og Black Project sem er eitt af mörgum erlendum brugghúsum á hátíðinni í ár.
Það er svo bara um að gera að mæta, smakka bjór og ræða við höfunda þeirra á meðan. Maður lærir heilmarkt nýtt þannig og upplifuninn verður allt önnur. Sjáumst!
Hin árlega íslenska bjórhátíð er í lok febrúar á Ægisgarði en þessi hátíð hefur verið ljósið í svartnættinu í upphafi árs fyrir okkur bjóráhugafólk síðustu árin. Hátíðin náði nýjum hæðum á síðasta ári en þá fengu bjórunnendur að njóta bjórs frá flottustu bjórframleiðendum veraldar og aldrei hafa jafn mörg íslensk brugghús tekið þátt. Önnur eins samkoma hefur ekki sést hér á landi áður. Það sem er svo magnað við þessa hátíð á KEX hostel (sem núna verður haldin á Ægisgarði) er stærðin þrátt fyrir smæðina en með því á ég við að þrátt fyrir að húsakynnin eru lítil þá er hátíðin með því stærsta sem gerist í heiminum þegar við tölum um gæði og fjölda brugghúsa sem mæta. Þetta þýðir að miðafjöldi er takmarkaður og gestir fá í raun einstakt tækifæri til að vera í nánum samskiptum við bjórframleiðendur, raðir eru stuttar og stemningin einstök. Í fyrra ræddi ég við nokkra bruggara sem sögðust sjaldan hafa skemmt sér svona vel á bjórhátíðum víða um heim. Þeim fannst þessi námd við aðdáendur sína svo einstök. Ég tek undir þetta.
Alla vega þessi gleði er að bresta á og listi brugghúsa þetta árið er stórglæsilegur og við getum verið örugg um að bjórinn verður stórkostlegur. Við sjáum mörg nöfn frá því í fyrra en líka mörg ný nöfn sem er alltaf spennandi. Jafnvel þótt topp listarnir á Ratebeer.com séu ekki alveg komnir út fyrir 2018 þá eru stærstu brugghúsin þetta árið sennilega Mikkeller, Other Half, Cloudwater og De Garde Brewing en þessi brugghús voru öll á top 10 lista yfir bestu brugghús veraldar 2017 (de Garde reyndar 2016) og flestum vel kunn en Bjór & Matur fjallaði aðeins um þau á síðasta ári sjá hér.
Allir koma þeir aftur
Ef við skoðum aðeins þá sem eru að koma aftur 2019 þá átti Other Half stórleik á síðasta ári og er ekki búist við minna núna. Hið danska To Øl þekkja flestir íslendingar nú orðið en þeir hafa mætt öll árin held ég svei mér þá og er auðvitað von á þeim aftur í ár. Þeir eru alltaf dálítið klassískir og stöðugir í því sem þeir eru að gera. Lamplighter kemur aftur en þeir voru magnaðir í fyrra og eru í sérstöku uppháhaldi hjá undirrituðum. Ég held að þeir ætli að brugga aftur með Borg Brugghús þetta árið ef marka má þær flugur sem ég hef aðgang að og hver veit nema minni spámenn nái bruggi með þetta árið….kemur í ljós!
Black Project koma líka aftur en þeir áttu súra sviðið í fyrra að okkar mati, ef þið hafa unun af súrbjórhvers konar þá getið þið verið handviss um að þið fáið það sem þið leitið eftir hjá Black Project. Það verður líka spennandi að sjá samverksbjórinn sem KEX Brewing bruggaði með þeim í fyrra hvenær sem hann kemur út. Fonta Flora voru líka í fyrra en þeir komu mér einna mest á óvart á síðasta ári. Ég þekkti þá lítið fyrir komu þeirra en þeir komu mér í opna skjöldu með algjörlega mind blowing wild ale, Funk Fuzz Wild Ale with Peaches 6.5%. Ég náði svo ekki almennilega að taka út De Garde síðast enda bara svo óskaplega margt í boði en „orðið á götunni“ var að þeir væru með stórgóðan súrbjór/wild ale alla dagana. Það er planið mitt þetta árið að kafa dálítið í öll þessi súru brugghús. Reyndar líka Brekeriet sem ekki voru í fyrra en ég mun fjalla ögn um þá hér að neðan.
Það voru vissulega fleiri frábær brugghús í fyrra sem voru að standa sig vel og koma aftur, þetta verður aldrei nein tæmandi yfirferð hér, svo var bara margt sem við bara náðum ekki að skoða síðast. Ég nefni í því samhengi J Wakefield, Aslin, Brewski og Garage Beer co, allt mjög frambærileg brugghús. Reyndar uppgötvaði ég ekki Garage almennilega fyrr en á ferðalagi í Barcelona á síðasta ári en þeir eru líklega alveg á toppnum meðal brugghúsa á Spáni. Ég get lofað ykkur því að ég mun heimsækja þeirra bás mikið á komandi hátíð.
Svo eru það auðvitað íslensku brugghúsin en þau koma flest með eitthvað gott í gogginn handa okkur aftur þetta árið. Staðfest eru Borg Brugghús, Malbygg, RVK Brewing, Lady, Ægir Brugghús og fleiri!
Ef við skoðum aðeins það sem Bjór & Matur er spenntastur fyrir af því sem er að koma nýtt inn þetta árið. Þá vil ég nefna Tired Hands sem hefur lengi verið á lista hjá mér en ég hef aldrei komist í að smakka bjórinn þeirra enda er það bara mjög erfitt því eftirspurnin er mikil. Þeir eru hins vegar dálítið umdeildir um þessar mundir, eitthvað sem ég hef ekki nennt að setja mig inní enda held ég að það breyti ekki bjórnum þeirra mikið. Ég hlakka mikið til að tékka á þessum skötuhjúum en þau eru þekkt fyrir nammibjóra eða bakkelsisbjóra í anda hinna sænsku Omnipollo sem reyndar koma ekki í ár. Ég er pínu sökker fyrir Omnipollo en það er önnur saga. Sagt er að Tired Hands hafi verið upphafsmenn hinna svo kallaðra milkshake IPA alla vega í Bandaríkjunum en um er að ræða safaríkar djúsbombur brugguðum með höfrum, hveiti og mjólkursykri. Þessir bjórar eru algjört salgæti!
Talandi um safabombur. Stigbergets Bryggeri er frá Gautaborg en það hefur verið að vaxa ört síðustu ár og gerir frábæran bjór. Ég hef t.d. sjaldan smakkað eins góðar NEIPAsafabombur og frá þessu brugghúsi svei mér þá, þeir standa alveg í hárinu á Other Half hvað þetta varðar. Þetta verður eitt af mínum stoppum alla þrjá dagana á hátíðinni. Brekeriet er líka sænskt brugghús sem sérhæfir sig í súrbjór. Ég hef ekki smakkað mikið frá þeim en það sem ég hef þó smakkað í gegnum tíðina hefur allt verið fullkomið. Það er skemmtilegt að segja frá því, líklega má ég það ekki en Borg Brugghús og Brekeriet brugguðu saman bjór fyrir löngu síðan, í raun blönduðu þeir saman Úlfi frá Borg og rauðum wilde ale frá Brekeriet sem bar nafnið Rauðhetta þannig að úr varð súr eða wild IPA sem auðvitað fékk nafnið Rauðhetta og Úlfurinn en hann mun koma á flöskur bara líklega á næstu vikum/mánuðum eða svo! Spennandi. Reyndar er það ekki óalgengt að brugghús noti tækifærið og bruggi saman bjór á svona hátíð, Borg bruggaði t.d. síðast með Lamplighter og KEX brewing, Malbygg gerði bjór með KEX brewing og Cycle Brewing (5. Besta brugghús veraldar) og svo er líklega eitthvað meira sem var í gangi bak við tjöldin. Þess má geta að bæði KEX brewing og Malbygg mæta til leiks í ár og við fáum von bráðar kannski að smakka þessa samstarfsbjóra. Borg hefur svo planlagt sambrugg með vægast sagt spennandi brugghúsi KCBC sem ég kem að hér að neðan.
Kings County Brewers Collective og fleiri frá NYC
En ég get ekki haft þetta mikið lengra að sinni, ég verð þó að nefna KCBC eða Kings County Brewers Collective í Brooklyn NY áður en ég hætti en ég er mjög spenntur fyrir þessu nýja brugghúsi sem var valið besta nýja brugghúsið í New York á síðasta ári af bjórgúrúum hjá Brookfield Place og Thrillist aðeins 18 mánuðum eftir að þeir hófu framleiðslu. Við erum að tala um harða samkeppni því bjórsenan í New York og nágrenni hefur verið að vaxa gríðarlega ört síðustu árin og við erum að sjá þar frábær brugghús poppa upp og má þá benda t.d. stórkostlegar bjórgerðir á borð við títt nefnt Other Half og Grimm sem sumir þekkja í Brooklyn, Evil Twin var einnig að opna sitt eigið brugghús í Brooklyn bara núna á dögunum. Auk Other Half og KCBC eru tvö önnur New York brugghús á bjórhátíð þetta árið, Finback og Interboro. Það er óhætt að mæla með að fólk skoði þessi NYC brugghús á komandi bjórhátíð, hver veit nema þarna leynist næsta Other Half? En eins og fyrr segir mun Borg brugga með KCBC bæði hér heima og svo aftur í New York á vormánuðum, það verður spennandi að fylgjast með því.
En það er erfitt að segja til um eða ákveða hvaða brugghús er best og hvaða bjór er bestur, á svona hátíð það fer dálítið eftir því hvað menn eru að sækjast eftir hverju sinni. Menn verða því að passa sig þegar dómar eru upp kveðnir. Þetta segir ég bara núna því á síðasta ári viðurkenni ég að ég var mikið á höttunum eftir t.d. skýjuðum New England IPA og litaðist mat mig á brugghúsunum dálítið af því hverjir voru með bestu safabomburnar. Ég reyndi þó að vera meðvitaður um það í skrifum mínum um Bjórhátíð. Ég held að almennt verði menn að fara í svona bjórhátíð með opnum hug og endilega prófa alls konar og um fram allt passa að fara ekki of geist. Það er mun betra að geta mætt alla dagana með nokkuð heilan haus í stað þess að fara „all in“ fyrsta daginn og vera svo ónýtur hina dagana, það er nefnilega svo að brugghúsin eru með nýja bjóra nánast alla dagana. Það er allt í lagi að drekka vel af vatni og taka sér hlé til að borða.
Muna svo að kaupa miða, þið ykkar sem ekki komast þá getið þið bara lesið umfjöllun okkar hér frá degi hverjum á meðan á hátíðinni stendur, það er samt ekki alveg eins gaman. Sjáumst!
You must be logged in to post a comment.