Það verður að viðurkennast að dagur tvö er aldrei eins sjarmerandi og dagur 1 á bjórhátíð enda flestir dálítið rykugir og maginn í rugli eftir gærdaginn. Bjórinn var samt á sínum stað í kvöld og flæddi út um allt vel og vandlega, Omnom og Ostarnir voru á sínum stað og tveir matarvagnar fyrir utan. Svo var plötusnúður á staðnum með dúndrandi techno og house músík sem ég fílaði reyndar mjög en margir töluðu um að það hafi verið of hátt stillt og ekki rétt tónlist. Það verður svo sem aldrei hægt að gleðja alla. Þrengslin voru áfram að trufla undirritaðan hins vegar, það var í raun varla hægt að rölta milli bása fyrir fólki. Kannski er það bara ég sem er viðkvæmur sérstaklega á degi tvö? En verður líklega að teljast jákvætt fyrir hátíðina þegar vel er mætt.
Ef við skoðum bjórinn þá er það mín tilfinning að súrbjórinnsé dálítið ríkjandi á þessari hátíð, þegar maður spyr fólk hvað menn mæla með þá var það alltaf súrbjór eða imperial stout sem nefndur var til sögunnar. Ekkert IPA eins og á síðasta ári þar sem haze æðið var alls ráðandi. Súrbjórarnir eru svo sannarlega víða og gæðin eru rosaleg. Fonta Flora var með tvo virkilega flotta í kvöld og Black Project með geggjað bottle pour, wild alesem legið hefur á whisky tunnum og svo blandað í nektarínum annars vegar og ferskjum hins vegar. Þessir báðir voru geggjaðir og líklega það besta í kvöld í súrbjórunum. Brekeriet var reyndar með alveg frábæran súrbjór líka, Vild Krikon sem er súrbjór með Damson ávexti (eitthvað plómu dæmi) og svo þroskaður á French Wine Foeders í 10 mánuði. Borg frumsýndi svo Rauðhettu og Úlfinn í kvöld en það er samstarfsverkefni Brekeriet og Borgar. Þetta er í raun blanda af Rauðhettusem er red wild ale og svo Úlfisem er IPAþannig að úr verður wild IPA ekki satt? Þessi bjór er mjög skemmtilegur og maður veit bara ekki alveg hvar maður á að staðsetja hann, fyrir mér er þetta meira wild ale en IPA alla vega.
Dugges var svo með imperial stout sem margir voru að tala um, banana toffee chocolate stout, en þó ég sé hrifinn af bakkelsisbjór þá var ég ekki að fíla þennan . Of væminn og skrítinn bara. Other Half var með mjög flottan imperial stout sem var dálítið umtalaður, mér fannst hann ágætur en ekkert í líkingu við monsterið frá Malbygg í gær, Brewhaha. Malbygg strákarnir ætla mögulega að bjóða Brewhaha á morgun en hann er annars kominn í vínbúðir í mjög takmörkuðu magni. Malbygg var með helvíti skemmtilegan brut IPA sem kom mjög vel út. Brut þýðir í raun að hann er eins og freyðivínið, gerjaður til fullst þannig að allur sykur eða því sem næst er gerjaður úr bjórnum. Tilvalinn fyrir þá sem eru t.d. á keto fæði. Smiðjan brugghús var líka með brut IPA, sá var heldur sætari en Malbygg útgáfan en samt skemmtilegur, mætti kannski þurrhumla aðeins lengur?
Tired Hands hélt áfram að heilla í kvöld, þeir voru með frábæra IPA bjóra og svo Saisonsem mikið var talað um, flestir sem ég hitti mæltu með honum alla vega. Geggjaður, Rustic Pentagram, súrbjór með mango og amarillo humlum, bruggaður með hveitimalti og látinn þroskast á french oak fouders! Verulega gott. Tired Hands hefur til þessa verið með fullt hús stiga. Geggjað brugghús.
Ég fór annars ekkert í NYC brugghúsin að þessu sinni nema í stoutinn frá OH. Ég heyrði menn hins vegar tala vel um KCBC bjórinn, þeir voru með geggjaðan DIPAvíst. Á morgun held ég að ég hvíli súrbjórinn og vinni meira í IPA og imp stout. Sjáumst þá!
Hin árlega íslenska bjórhátíð er í lok febrúar á Ægisgarði en þessi hátíð hefur verið ljósið í svartnættinu í upphafi árs fyrir okkur bjóráhugafólk síðustu árin. Hátíðin náði nýjum hæðum á síðasta ári en þá fengu bjórunnendur að njóta bjórs frá flottustu bjórframleiðendum veraldar og aldrei hafa jafn mörg íslensk brugghús tekið þátt. Önnur eins samkoma hefur ekki sést hér á landi áður. Það sem er svo magnað við þessa hátíð á KEX hostel (sem núna verður haldin á Ægisgarði) er stærðin þrátt fyrir smæðina en með því á ég við að þrátt fyrir að húsakynnin eru lítil þá er hátíðin með því stærsta sem gerist í heiminum þegar við tölum um gæði og fjölda brugghúsa sem mæta. Þetta þýðir að miðafjöldi er takmarkaður og gestir fá í raun einstakt tækifæri til að vera í nánum samskiptum við bjórframleiðendur, raðir eru stuttar og stemningin einstök. Í fyrra ræddi ég við nokkra bruggara sem sögðust sjaldan hafa skemmt sér svona vel á bjórhátíðum víða um heim. Þeim fannst þessi námd við aðdáendur sína svo einstök. Ég tek undir þetta.
Alla vega þessi gleði er að bresta á og listi brugghúsa þetta árið er stórglæsilegur og við getum verið örugg um að bjórinn verður stórkostlegur. Við sjáum mörg nöfn frá því í fyrra en líka mörg ný nöfn sem er alltaf spennandi. Jafnvel þótt topp listarnir á Ratebeer.com séu ekki alveg komnir út fyrir 2018 þá eru stærstu brugghúsin þetta árið sennilega Mikkeller, Other Half, Cloudwater og De Garde Brewing en þessi brugghús voru öll á top 10 lista yfir bestu brugghús veraldar 2017 (de Garde reyndar 2016) og flestum vel kunn en Bjór & Matur fjallaði aðeins um þau á síðasta ári sjá hér.
Allir koma þeir aftur
Ef við skoðum aðeins þá sem eru að koma aftur 2019 þá átti Other Half stórleik á síðasta ári og er ekki búist við minna núna. Hið danska To Øl þekkja flestir íslendingar nú orðið en þeir hafa mætt öll árin held ég svei mér þá og er auðvitað von á þeim aftur í ár. Þeir eru alltaf dálítið klassískir og stöðugir í því sem þeir eru að gera. Lamplighter kemur aftur en þeir voru magnaðir í fyrra og eru í sérstöku uppháhaldi hjá undirrituðum. Ég held að þeir ætli að brugga aftur með Borg Brugghús þetta árið ef marka má þær flugur sem ég hef aðgang að og hver veit nema minni spámenn nái bruggi með þetta árið….kemur í ljós!
Black Project koma líka aftur en þeir áttu súra sviðið í fyrra að okkar mati, ef þið hafa unun af súrbjórhvers konar þá getið þið verið handviss um að þið fáið það sem þið leitið eftir hjá Black Project. Það verður líka spennandi að sjá samverksbjórinn sem KEX Brewing bruggaði með þeim í fyrra hvenær sem hann kemur út. Fonta Flora voru líka í fyrra en þeir komu mér einna mest á óvart á síðasta ári. Ég þekkti þá lítið fyrir komu þeirra en þeir komu mér í opna skjöldu með algjörlega mind blowing wild ale, Funk Fuzz Wild Ale with Peaches 6.5%. Ég náði svo ekki almennilega að taka út De Garde síðast enda bara svo óskaplega margt í boði en „orðið á götunni“ var að þeir væru með stórgóðan súrbjór/wild ale alla dagana. Það er planið mitt þetta árið að kafa dálítið í öll þessi súru brugghús. Reyndar líka Brekeriet sem ekki voru í fyrra en ég mun fjalla ögn um þá hér að neðan.
Það voru vissulega fleiri frábær brugghús í fyrra sem voru að standa sig vel og koma aftur, þetta verður aldrei nein tæmandi yfirferð hér, svo var bara margt sem við bara náðum ekki að skoða síðast. Ég nefni í því samhengi J Wakefield, Aslin, Brewski og Garage Beer co, allt mjög frambærileg brugghús. Reyndar uppgötvaði ég ekki Garage almennilega fyrr en á ferðalagi í Barcelona á síðasta ári en þeir eru líklega alveg á toppnum meðal brugghúsa á Spáni. Ég get lofað ykkur því að ég mun heimsækja þeirra bás mikið á komandi hátíð.
Svo eru það auðvitað íslensku brugghúsin en þau koma flest með eitthvað gott í gogginn handa okkur aftur þetta árið. Staðfest eru Borg Brugghús, Malbygg, RVK Brewing, Lady, Ægir Brugghús og fleiri!
Ef við skoðum aðeins það sem Bjór & Matur er spenntastur fyrir af því sem er að koma nýtt inn þetta árið. Þá vil ég nefna Tired Hands sem hefur lengi verið á lista hjá mér en ég hef aldrei komist í að smakka bjórinn þeirra enda er það bara mjög erfitt því eftirspurnin er mikil. Þeir eru hins vegar dálítið umdeildir um þessar mundir, eitthvað sem ég hef ekki nennt að setja mig inní enda held ég að það breyti ekki bjórnum þeirra mikið. Ég hlakka mikið til að tékka á þessum skötuhjúum en þau eru þekkt fyrir nammibjóra eða bakkelsisbjóra í anda hinna sænsku Omnipollo sem reyndar koma ekki í ár. Ég er pínu sökker fyrir Omnipollo en það er önnur saga. Sagt er að Tired Hands hafi verið upphafsmenn hinna svo kallaðra milkshake IPA alla vega í Bandaríkjunum en um er að ræða safaríkar djúsbombur brugguðum með höfrum, hveiti og mjólkursykri. Þessir bjórar eru algjört salgæti!
Talandi um safabombur. Stigbergets Bryggeri er frá Gautaborg en það hefur verið að vaxa ört síðustu ár og gerir frábæran bjór. Ég hef t.d. sjaldan smakkað eins góðar NEIPAsafabombur og frá þessu brugghúsi svei mér þá, þeir standa alveg í hárinu á Other Half hvað þetta varðar. Þetta verður eitt af mínum stoppum alla þrjá dagana á hátíðinni. Brekeriet er líka sænskt brugghús sem sérhæfir sig í súrbjór. Ég hef ekki smakkað mikið frá þeim en það sem ég hef þó smakkað í gegnum tíðina hefur allt verið fullkomið. Það er skemmtilegt að segja frá því, líklega má ég það ekki en Borg Brugghús og Brekeriet brugguðu saman bjór fyrir löngu síðan, í raun blönduðu þeir saman Úlfi frá Borg og rauðum wilde ale frá Brekeriet sem bar nafnið Rauðhetta þannig að úr varð súr eða wild IPA sem auðvitað fékk nafnið Rauðhetta og Úlfurinn en hann mun koma á flöskur bara líklega á næstu vikum/mánuðum eða svo! Spennandi. Reyndar er það ekki óalgengt að brugghús noti tækifærið og bruggi saman bjór á svona hátíð, Borg bruggaði t.d. síðast með Lamplighter og KEX brewing, Malbygg gerði bjór með KEX brewing og Cycle Brewing (5. Besta brugghús veraldar) og svo er líklega eitthvað meira sem var í gangi bak við tjöldin. Þess má geta að bæði KEX brewing og Malbygg mæta til leiks í ár og við fáum von bráðar kannski að smakka þessa samstarfsbjóra. Borg hefur svo planlagt sambrugg með vægast sagt spennandi brugghúsi KCBC sem ég kem að hér að neðan.
Kings County Brewers Collective og fleiri frá NYC
En ég get ekki haft þetta mikið lengra að sinni, ég verð þó að nefna KCBC eða Kings County Brewers Collective í Brooklyn NY áður en ég hætti en ég er mjög spenntur fyrir þessu nýja brugghúsi sem var valið besta nýja brugghúsið í New York á síðasta ári af bjórgúrúum hjá Brookfield Place og Thrillist aðeins 18 mánuðum eftir að þeir hófu framleiðslu. Við erum að tala um harða samkeppni því bjórsenan í New York og nágrenni hefur verið að vaxa gríðarlega ört síðustu árin og við erum að sjá þar frábær brugghús poppa upp og má þá benda t.d. stórkostlegar bjórgerðir á borð við títt nefnt Other Half og Grimm sem sumir þekkja í Brooklyn, Evil Twin var einnig að opna sitt eigið brugghús í Brooklyn bara núna á dögunum. Auk Other Half og KCBC eru tvö önnur New York brugghús á bjórhátíð þetta árið, Finback og Interboro. Það er óhætt að mæla með að fólk skoði þessi NYC brugghús á komandi bjórhátíð, hver veit nema þarna leynist næsta Other Half? En eins og fyrr segir mun Borg brugga með KCBC bæði hér heima og svo aftur í New York á vormánuðum, það verður spennandi að fylgjast með því.
En það er erfitt að segja til um eða ákveða hvaða brugghús er best og hvaða bjór er bestur, á svona hátíð það fer dálítið eftir því hvað menn eru að sækjast eftir hverju sinni. Menn verða því að passa sig þegar dómar eru upp kveðnir. Þetta segir ég bara núna því á síðasta ári viðurkenni ég að ég var mikið á höttunum eftir t.d. skýjuðum New England IPA og litaðist mat mig á brugghúsunum dálítið af því hverjir voru með bestu safabomburnar. Ég reyndi þó að vera meðvitaður um það í skrifum mínum um Bjórhátíð. Ég held að almennt verði menn að fara í svona bjórhátíð með opnum hug og endilega prófa alls konar og um fram allt passa að fara ekki of geist. Það er mun betra að geta mætt alla dagana með nokkuð heilan haus í stað þess að fara „all in“ fyrsta daginn og vera svo ónýtur hina dagana, það er nefnilega svo að brugghúsin eru með nýja bjóra nánast alla dagana. Það er allt í lagi að drekka vel af vatni og taka sér hlé til að borða.
Muna svo að kaupa miða, þið ykkar sem ekki komast þá getið þið bara lesið umfjöllun okkar hér frá degi hverjum á meðan á hátíðinni stendur, það er samt ekki alveg eins gaman. Sjáumst!
Þá er parTíið búið, loka dagur Bjórhátíðar var í gær og nú er heilt ár í næstu veislu. Það eru dálítið blendnar tilfinningar sem bærast í manni í dag, að hluta til er ég dálítið feginn að þessu sé lokið, það er bara takmarkað hvað hægt er að leggja á sig en á hinn bóginn þá er maður dálítið tómur inní sér. Hvað á maður að gera næstu daga t.d.? Enginn bjór? Það er reyndar alveg leyfilegt að opna dós af góðu öli í dag t.d. frá Lamplighter, svona til að trappa sig aðeins niður (þ.e.a.s ef maður var pínu séður og verslaði nesti á Bjórhátíð).
En tökum lokadaginn saman hér eldsnöggt en svo kemur heildar samantekt innan skamms. Gærdagurinn var dálítið erfiðari en fyrstu tveir, ég held að palletan hafi verið orðinn mettuðm bragðlaukar dálítið dofnir og svo er hitt að maður verður svo vanur góðum bjór að kröfurnar aukast með degi hverjum. Ég held að 3 dagar séu alveg max í svona fest. Ég fann amk að ég átti erfitt með að finna virkilega góðan bjór í gær en mér tókst það nú samt.
Ég smakkaði lítið af því íslenska í gær, en ég leit við hjá KEX brewing, Borg, Malbygg og Ölverk en ég bara gleymdi að smakka spennandi bjór frá Ör Brewing Project sem þeir kölluðu How Hi Are You og er IPA með bourbon, vanillu og laktósa. Frekar súrt að missa af þessum skrítna karli, en ég er nokkuð viss um að ég geti laumast í smakk á næstunni eða hvað? Malbygg var hins vegar með besta bjórinn þennan daginn að mínu mati, helvíti nettann skýjaðan pale ale með Galaxy. Þetta er greinilega allt á réttri leið hjá þeim. Borg var ekki með neitt spennandi þennan daginn, þ.e.a.s ekkert sem ég hafði ekki smakkað áður nema tuttugu og eitthvað rúmlega % kolsvarta monsterið á litlu tunnunni, hann fór alveg með mig svona á 3. degi í þynnku. Ég ætla bara ekkert að tjá mig frekar um hann.
Ég var mest ánægður með það sem var að gerast á efri hæðinni í gær, The Other Half héldu áfram að töfra mann upp úr skónum 3. daginn í röð. Báðir IPA bjórarnir þeirra voru geggjaðir en mér fannst samt Space Cadet (9.1%)hazy citra DIPA frá Voodoo Brewing alveg sturlaður, einmitt það sem mig vantaði til að lifna aðeins við. Black Magic, 13% imperial stoutinn frá Voodoo var einnig magnaður, þroskaður á four roses bourbon tunnum, hins vegar heldur snemmt að fara í svona karl kl 16:00 á laugardegi. The Veil voru líka með mjög gott mót í gær, en ekkert nýtt samt fyrir mig (hafði smakkað þetta á tap takeover á miðvikudaginn á Mikkeller). Tripel IPAinn þeirra sem var undir alla dagana var reyndar með betri bjóruim hátíðarinnar. Bokkereyder var með áhugaverðan bjór, einn fyrsti bjórinn sem þeir gerðu, gueuze sem tappað var á flösku 2014. Raf hafði gleymt þessum flöskum en fann þær bara nýlega og ákvað að kippa þeim með til Íslands. Verulega flottur gueuze.
Voodoo gaurarnir hafa verið að standa sig vel alla hátíðina
Civil Society (5 besta nýja brugghús á Ratberr 2017) þarf að nefna hér en þeir hafa verið með arfa góðan bjór alla hátíðina. Safaríku DIPA bjórarnir standa uppúr hjá þeim og í gær var engin undantekning. Mjög flott. Besti bjór gærdagsins, þeir voru reyndar tveir, kom hins vegar frá Mikkeller. Já ég veit pínu klisja? Samt, þessir voru algjörlega mindblowing. Eftir helling af bjór í gær sem mér fannst bara góður þá kom þessi, Spontanpentadrupelrasperry 13% ávaxtasprengja sem kom mér bara í opna skjöldu. Eftir þennan bjór var ég í raun bara tilbúin að fara heim og segja þetta gott, ég gerði það reyndar ekki, fékk mér fyrst annað glas ef þessu sælgæti og kláraði svo daginn á Mikkeller Beer Geek Vanilla Maple Shake barrel aged (13%) og þvílíkur endir á góðri hátíð.
Nú eru hátíðarnar um garð gengnar og nýtt ár runnið upp og ekkert virðist framundan nema myrkir kaldir vetrarmánuðir, en þá sjáum við ljós í svartnættinu, nýja von, Bjórhátíðin á Kex! Já Bjórhátíð á Kex er orðin einn af þessum föstu punktum í tilverunni hjá nautnaseggjum og bjórvinum þessa lands og ætti í raun að vera hátíð allra sem áhuga hafa á sjálfstæði einstaklingsin og frjálsræðishyggju. Bjórhátíð er nefnilega haldin að tilefni „afmæli bjórs á Íslandi“ eins og dagurinn 1. Mars er oft kallaður en það er sá dagur þegar við Íslendingar máttum aftur kaupa okkur bjór árið 1989 eftir langt og heimskulegt bjórbann. Hátíðin verður nú haldin í 7 sinn dagana 22. – 24. Febrúar 2018 en hún hefur verið að vaxa ört síðustu ár. Hvert árið hefur slegið árinu á undan út í glæsileika og fjölda brugghúsa og núna 2018 verður hátíðin algjörlega snar geggjuð ef marka má langan og fallegan lista brugghúsa sem munu mæta með bjórinn sinn að þessu sinni. Þetta er bara eitthvað sem enginn, með einhvern snefil af áhuga á að gera vel við sig, má missa af.
Bjórhátíðin á Kex er eins og bjórhátíðir eru flestar í heiminum í kringum okkur, brugghús mæta með alls konar fljótandi kræsingar, oft eitthvað sem er sérlagað fyrir hátíðina og svo er drukkið og spjallað og haft gaman. Svona hátíð er kjörið tækifæri til að smakka nýjungar og ögra bragðlaukunum og oft á tíðum uppgötva eitthvað alveg nýtt bragð eða nýjan bjór sem maður vissi bara ekki að væri til. Það er líka frábært að geta svo rætt við bjórsmiðina sjálfa um hvernig bjórinn varð til eða hvaða hráefni eru notuð ofl en oft er heilmikil saga á bak við bjórinn sem maður er með í glasinu sem stundum er ótrúleg og spennandi. Upplifunin gjörbreytist þegar maður veit vinnuna á bak við drykkinn. Ekki nóg með góðan bjór þá verður einnig boðið upp á lifandi músík og snarl.
Þegar þetta byrjaði allt saman fyrir 7 árum þá voru örfá íslensk brugghús sem kynntu til leiks bjórinn sinn en íslenskum brugghúsum hefur fjölgað töluvert síðan og áhugi erlendra bjórsmiða á að koma á Bjórhátíð er orðinn gríðarlegur. Við erum að tala um að núna í febrúar getur maður smakkað hér á litla Íslandi erlendan bjór sem á stundum er bara ekki hægt að smakka nema kannski beint frá viðkomandi brugghúsi í takmörkuðu magni. Mörg þessara brugghúsa eru með stærstu nöfnum í bjórveröldinni og bjór þeirra svakalega eftirsóttur.
Mynd af Bjórhátíð 2017,eftir Lilju Jóns. Birt með góðfúsu leyfi Kex
Við megum svo ekki gleyma íslensku brugghúsunum en þau eru að verða verulega áhugaverð og gera mörg hver stórkostlegan bjór. Í ár erum við að sjá flotta mætingu, við erum með snillingana frá Borg brugghús sem hafa verið með frá upphafi held ég en það er alltaf eitthvað kyngimagnað frá þeim á krana, svo er virkilega spennandi að fylgjast með KEX brewing sem að mínu mati eru meðal þeirra bestu í íslenskum bjór enda virðast þeir bara brugga bjór sem er eins og sniðinn fyrir mig? The Brothers Brewery hafa hingað til verið að gera skemmtilegan og vandaðan bjór sem vert er að skoða og svo verða glæný brugghús á Bjórhátíð svo sem Lady Brewery sem alveg negldu fyrsta bjórinn, First Lady IPA. Við munum svo einnig sjá brugghús sem hafa ekki einu sinni hafið göngu sína svo sem Reykjavík Brewing Companyog Malbyggen þessi brugghús eru mjög lofandi og munu án efa umturna íslenskri bjórsenu ef ég þekki þessa kappa rétt. Reykjavík Brewing Company stefnir á að opna núna á fyrstu mánuðum ársins og Malbygg kemur þar fljótt á eftir með opnun í kringum mars apríl ef ég hef það rétt eftir. Smiðjan Brugghús er einnig í smíðum í Vík og mér sýnist þeir vera að stefna á opnun ú sumar. Ég verð að viðurkenna að ég þekki lítið til þeirra sem standa á bak við brugghúsið en það verður gaman að fá að smakka fyrsta bjórinn frá þeim á Bjórhátíð.
Eins og fyrr segir þá er listi brugghúsa langur og spennandi og mörg stór nöfn hafa boðað komu sína. Það væri ómögulegt að fara yfir þau öll hér svo vel sé enda er stundum bara skemmilegra að vita sem minnst, þannig verða oft skemmilegustu uppgötvanirnar. Mig langar þó aðeins að skoða erlendu bjórgerðirnar betur. Hér má sjá listann í heild sinni, 48 brugghús!
Mikkeller, To Øl og BRUS
Þegar við skautum yfir listann sjáum við þarna góðkunningja á borð við Mikkeller, To Øl og BRUSsem flestir ættu nú að þekkja enda hafa þessi dönsku brugghús verið á Kex í nokkur ár, og svo eru þessir gaurar auðvitað á bak við Mikkeller & Friends Reykjavík. Mikkeller er einfaldlega eitt stærsta nafn bjórheimsins, ætla ég að leyfa mér að segja, og mun ég ekki fjalla nánar um þá hér enda má lesa um þá víða. Það sama má segja um To Øl og BRUS (bjórrestaurant rekinn af To Øl) sem hafa verið að vaxa mikið síðustu ár, ég held bara varla að ég hafi smakkað vondan bjór frá þeim?
Lord Hobo
Svo sjáum við hetjur sem voru líka á síðustu Bjórhátíð eins og Lord Hobo, Brewski, Other Half, Collective Arts og Alefarm. Ég man að öll þessi brugghús slóu í gegn síðast, karlarnir frá Lord Hobo sem koma alla leið frá Boston USA eru álíka skemmtilega ruglaðir og bjórinn þeirra er góður en þeir voru með nokkrar perlur í fyrra, ég man t.d eftir fáránlega djúsí og ljúfum DIPA. Prófið að ræða við þá, þeir eru kolruglaðir.
Alefarm
Svo var hið danska Alefarm að koma mér verulega á óvart síðast en þeir eru virkilega flínkir í að brugga sveitabjór (saison) og safaríka IPA bjóra sem sæta mikilla vinsælda um þessar mundir. Þó svo að vera frekar nýtt brugghús þá eru þeir að rísa hratt í bjórheiminum og mikill áhugi er fyrir bjór þeirra á öllum stærstu bjórhátíðum veraldar. Á síðu Mikkeller segir orðrétt „one of the best things that have happened to the Danish Beer scene the past few years.“. Stór orð frá stórri bruggstjörnu!
Mynd af Bjórhátíð 2017,eftir Lilju Jóns. Birt með góðfúsu leyfi Kex
Brewsky
Fyrst við vorum að tala um norræn brugghús hér að ofan er rétt að nefna til sögunnar Brewsky sem er sænskst örbrugghús sem vert er að hafa auga með en þeir eru eitt af þessum brugghúsum sem eru að stækka ört og þeir gera fáránlega ljúfa og ávaxtaríka IPA bjóra. Þeir mættu í fyrra og slóu í gegn. Þó svo að þeir séu ekki á lista yfir top 100 bestu brugghúsa heims á Ratebeer 2016 þá kæmi mér ekki á óvart að sjá þá þar á 2017 listanum sem en er ekki kominn út. Brewsky stendur m.a. á bak við bjórhátíðina Brewskyvalí Helsingborg en þangað mættu mörg flottustu brugghúsa veraldar á síðasta ári.
Talandi um Ratebeer lista, þá er 100 bestu brugghús heims ansi flottur listi til að vera á en valið stendur á milli rúmlega 22.500 brugghúsa víðs vegar um heiminn. Ef þið skoðið listann á Ratebeer þá sjáið þið að stór hluti þeirra brugghúsa sem eru að koma á bjórhátíð eru á listanum yfir 100 bestu brugghús heims. Flott ekki satt?
Other Half Brewing
frá Brooklyn New York er mér sérstaklega sönn ánægja að fá að kynna til leiks en þetta er eitt af þeim brugghúsum þessa veraldar sem ég er hvað mest spenntur fyrir þessi misserin. Bjórinn frá þessum meisturum er algjör draumur en þeir gera mikið af safaríkum og þægilegum IPA bjór eða NE IPA eins og menn vilja flokka þá, sem er einmitt sá stíll sem er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Ég er því kannski ekki hlutlaus, hins vegar er bjórheimurinn sammála mér í þessu en þess má geta að Other Half voru valdir 7. besta nýja brugghús heims á meðal rúmlega 3800 brugghúsa á Ratebeer 2015 og núna sitja þeir í 10. sæti yfir bestu brugghús veraldar á Ratebeer (2016 listinn). Það verður að teljast nokkuð gott ekki satt? Hvort sem það er safaríkur IPA, spriklandi saison eða ögrandi súrbjór þá er það allt saman gott. Já það er vert að smakka bókstaflega allt sem þessir gaurar koma með á Bjórhátíð 2018, þetta er sjaldgæft tækifæri.
Cloudwater Brewing
Á þessum sama lista liggur breskt brugghús í 5. sæti, Cloudwater brewing sem staðsett er í Manchester UK. Þessir gaurar hófu starfsemi sína á sama tíma og Other Half árið 2014 og hafa náð álíka árangri. Sjálfur hef ég smakkað lítið frá þeim en það sem ég hef komist yfir hefur verið virkilega vandað og gott. Ég mun klárlega mynda röð við Cloudwater básinn á komandi hátíð og vera með læti, mikið hlakka ég til.
De Garde Brewing
Talandi um 10 bestu brugghús heims, þá er De Garde Brewing nr 7 á þeim lista. Hvað er í gangi hérna eiginlega, er þetta ekki litla Ísland sem við erum að tala um annars? De Garde bruggar bjór á eins náttúrulegan máta og hægt er. Þeir sérhæga sig í sjálfgerjuðum bjór (spontant fermented) af belgískum toga og nota aðeins villiger og þá er ég ekki að tala um einangrað ræktað villiger, nei ég er að tala um villiger sem fyrirfinnst í andrúmsloftinu í kringum brugghúsið í Oregon USA, rétt eins og menn gera í Cantillon í Brussel. Til þess notar þeir svo kallað kæliskip eða coolship þar sem soðinn kældur bjórvökvinn er látinn standa á meðan örverur allt í kring lenda í vökvanum og byrja að gerja hann. Við erum að tala um bakteríur og gersveppi sem gefa frá sér sérstakar bragðflækjur sem sumir kalla súrt og „funky“. Bjórinn er svo fluttur yfir í eikartunnur og látinn þroskast þar frá 3 mánuðum og upp í rúmlega 3 ár áður en hann fer á flöskur. Þar hefst svo önnur gerjun sem kolsýrir bjórinn á náttúrulegan máta. Já þetta er sannkallað „craft“.
Bokkereyder
Svo er það Bokkereyder, lítið belgískt ævintýri sem frábært er að fá að taka þátt í á komandi hátíð. Þetta er lítið brugghús, líklega það minnsta á komandi hátíð og nokkuð óþekkt þangað til bara nýlega þegar það var valið besta nýja brugghús heims 2016 á Ratebeer á meðal 6500 nýrra brugghúsa . Ég hef ekkert smakkað frá þeim fram til þessa en það mun breytast núna í febrúar. Það er Raf Souvereyns sem stendur fyrir Bokkereyder en hann er mikill áhugamaður um sjálfgerjaðan villibjór eða lambic sem Belgar eru svo frægir fyrir. Þekktustu lambic brugghús veraldar eru án efa Cantillon og 3 Fonteinen en Bokkereyder er smám saman að skipa sér sess meðal þeirra bestu. Þetta verður líklega það erlenda brugghús sem mun koma mest á óvart á Kex hátíðiðinni þetta árið?
The Veil Brewery
er svo annað nafn sem fær bjórnörda þessa heims til að nötra af spenningi, ég skelf alla vega. The Veil hófu framleiðslu sína í Richmond Virginia í Bandaríkjunum árið 2016 og voru svo valdir þriðja besta nýja brugghús heims á ofan töldum lista á Ratebeer. Þeir sérhæfa sig í og brugga eingöngu IPA og DIPA sem er sá bjórstíll sem vinsælastur er meðal bjóráhugafólks. Þetta er frábært, hér gengur maður að því vísu að fá góðan IPA og ekkert rugl. Ég skal segja ykkur að þó ég sé að fara mynda röð við Cloudwater básinn þá mun ég finna leið til að mynda enn lengri röð við The Veil básinn, þetta verður rosalegt. Hér er smá upphitun fyrir ykkur (https://theaudienceawards.com/films/the-veil-brewing-company-130253)
Civil Society Brewing
Ef við höldum áfram niður lista bestu nýju brugghúsa heims 2016 þá er í 5. sæti fjölskyldubrugghúsið Civil Society Brewing sem ætla mætti að væri frá öðrum hnetti en það er staðsett í Jupiter Florida, hvar sem það nú er? Brugghúsið einblínir á vel humlaðan bjór ss IPA og DIPA en það er jú það sem við viljum ekki satt? 80% af framleiðslunni fer alla vega undir humlaðan bjór. Þetta brugghús mun án efa verða eitthvað!
Mig langar svo að nefna hér til sögunnar í lokin People Like Us sem er nýtt danskt brugghús sem hefur þá sérstöðu að vera rekið af fólki með Einhverfu. Mikkel Borg (Mikkeller) hefur verið þeim mikill stuðningur og á stóran þátt í því að brugghúsið er komið á ról og farið að selja bjór sinn á danskan markað. Skemmtileg pæling og vonandi góður bjór!
Já þegar maður skoðar þetta nánar má sjá að viðburðurinn er ekkert minna en stórkostlegur og alveg á pari við flottustu bjórhátíðir heims. Þetta varður epískt. Ég tek það fram að það eru mörg önnur virkilega spennandi brugghús sem ég hef ekki nefnt hér, bara vegna tímaskorts. T.d. J Wakefield, Lamplighter, Surly, Collectivearts ofl. Æ þetta er allt magnað. Hlakka til að sjá ykkur!!!
You must be logged in to post a comment.