Þegar kemur að nautakjöti þá skiptist heimilið mitt í tvær fylkingar varðandi uppáhalds stykkið. Kona mín og dóttir elska ribeye steikina en mér og sonum finnst sú steik oftast bara vesen, sinar og fita sem erfitt er að “rendera” svo vel sé. Bragðið er hins vegar geggjað. Mér hefur alveg tekist að gera gott ribeye en nauta filet negli ég hins vegar alltaf. Filet var uppáhalds steikin mín þangað til ég kynntist ribeye cap.
Já ribeye cap er hin fullkomna steik, hún er djúsí og flott, sinalaus eins og filet en með allt bragðið sem ribeye býður upp á. Það besta er svo að það er sáraeinfalt að elda þessa steik to perfection.
Afhverju er ég að skrifa um þessa steik fyrst núna? Jú ég í raun er ekki viss um hvort ég ætti að vera að segja ykkur frá þessu yfir höfuð því það er erfitt að fá þessa steik í kjötbúðum landsins en það er samt hægt en verður vissulega erfiðara ef eftirspurnin eykst.
Það sem þarf fyrir 5
Ca 800 grömm af ribeye cap ætti að duga fyrir 5 einstaklinga, Það gerir það hjá okkur alla vega. Látið setja marineringu fyrir ykkur á kjötið í kjötbúðinni, t.d. Black garlic.
Aðferðin

Hitið grill, setjið kjötið á grillið þegar það er orðið vel heitt, í kringum 200 gráður og látið grillast á hvorri hlið í ca 3,5 til 4 mín. Þetta fer dálítið eftir þykktinni á steikinni samt en líka veðri og vindum. Já ef það er kalt or blæs þá er grillið ekki að skila sama hita. Stundum hef ég 3 mín og stundum 5. Alltaf betra að elda of stutt ef maður er í vafa. Svo er kjötið látið hvíla í 15 mín undir álpappír. Fínt að setja smjörklípu yfir.
Loks skerið þið kjötið niður í ca 1,5 cm þykkar sneiðar og berið fram. Þetta er algjörlega geggjað kjöt.


















You must be logged in to post a comment.