
Eins og svo margir þá féllum við algerlega fyrir brokkolísalatinu sem við smökkuðum fyrst frá Sælkerabúðinni fyrir einhverju síðan og eins og með svo margt sem okkur finnst gott þá var ákveðið að prófa heimagert. Viti menn, þetta salat er geggjað og ég skal bara segja það, þetta er betra en fyrirmyndin. Við smökkuðum meira að segja head on okkar vs þeirra og með gestum og var niðurstaðan sú sama. Þetta er bara æðislegt með alls konar réttum.
Síðan ég setti þessa uppskrift inn hefur hún verið lang lang vinsælasta færslan á síðunni. Aðrar uppskriftir sem hafa fengið mikla athygli eru t.d. Ein besta sósa sem til er með kjöti, kartöfluhugmyndirnar,
Það sem þarf:
- Brokkolí, helst íslenskt, það er bara mun betra. Magn fer eftir smekk
- Hálfur rauðlaukur fínt saxaður
- Trönuber söxuð, 1 dl
- Ristaðar furuhnetur, hálfur til einn poki
- Majones, 1 bolli
- Sýrður rjómi, 3/4 bolli (næstum því heil dós)
- Sykur, 2 mtsk
- Hvítvínsedik, 2 mtsk
Aðferð:
Brokkolí er skolað og skorið fínt, sama með rauðlaukinn (hálfur) og trönuberin (1 dl). Blandið þessu í skál, bætið svo furuhnetum, majonesi (1 bolli), sýrðum rjóma (3/4 bolli), sykri (2 mtsk) og hvítvínsediki (2 mtsk) saman við og blandið þessu öllu saman.
Látið þetta svo standa í kæli í amk klst. Salatið er nefnilega dálítið sætt fyrst en þegar það tekur sig kemur á þetta fullkomið jafnvægi. Ef ykkur vantar samt meiri sýru eða sætu þá bara stillið þið af með ediki eða sykri.
Svo má jóla þetta smá upp ef maður vill, við prófuðum það þetta árið að bæta granatepla fræjum saman við. Það kom skemmtilega út.
Salat þarf svo ekki bara að vera meðlæti t.d. er þetta salat virkilega skemmtilegt sem fylling í bao bollum ásamt hægelduðum grís. Hvet ykkur til að prófa.
Verði ykkur að góðu!