Langeldaðar grísakinnar með gnocchi

Í sumar skrapp ég til Nice í Frakklandi og ók svo til Barolo í Ítalíu og aftur til baka. Get svo sannarlega mælt með þessum hring. En það er önnur saga. Við skoðuðum lítinn geggjaðan bæ skammt frá Nice sem heitir Ezé, þar fékk ég mér grísakinnar sem voru hægeldaðar í rauðvínssósu með dásamlegu fersku gnocchi. Þetta var algerlega tryllt gott. Auðvitað ákváðum við Sigrún að láta á þetta reyna hér heima.

Ég fann ferskar grísakinnar í Fiska í Kópavoginum, þar voru reyndar líka nautakinnar sem ég á eftir að leika mér með held ég. En alla vega ég fann einhverja uppskrift á netinu. Nordic Kitchen Stories sem ég kann reyndar ekki frekari deili á en þessi réttur koma ofsalega vel út.

Það sem þarf fyrir 5

  • 1 kg grísakinnar frá Fiska t.d.
  • 1 gulur laukur, skorinn smátt
  • 1 stór gulrót, skræld og skorinn í sneiðar
  • 2 sellerí stönglar skornir í bita
  • 2 hvítlausgeirar, pressaðir
  • 75 g tómatpúrra
  • 500 ml þurrt rauðvín
  • Um 500 ml nautasoð
  • 2 tsk marin fennel fræ
  • 1 – 2 lárviðarlauf
  • Smá hveiti til að sáldra yfir

Fyrir grænmetið með:

  • 6-7 gulrætur
  • 6 skarlottulaukar
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 2-3 greinar ferskt timian
  • Ólífuolía og smjör til steikingar

Fyrir gnocchi:

  • 500 g kartöflur
  • 60 g kartöflumjöl
  • 60 g hveiti
  • 1 egg

Aðferð:

1. Forhitaðu ofn í 140 gráður. Taktu kinnarnar og kryddaðu með salti og pipar. Sáldraðu smá hveiti yfir. Hitaðu ólífuolíu á pönnu og steiktu svo kinnarnar á báðum hliðum þar til þær eru orðnar gylltar og fallegar. Taktu svo til hliðar.

2. Brúnaðu svo smátt skorinn lauk, selleríbitana og gulræturnar á meðal hita í ólífuolíu í potti sem má fara í ofn. Bættu svo við 75 g tómatpúrru og hvítlauknum saman við ásamt smá af rauðvíninu. Sjóða svo niður þar til tómatpúrran hefur dökknað og karmelliseriast aðeins. Haltu svo áfram og bættu við rauðvíni aftur og aftur og láttu sjóða niður á milli þar til þú ert kominn með sósu sem er dökkrauð að lit.

3. Bættu svo kinnunum saman við ásamt nautasoði þar til það rétt hylur kinnarnar. Bættu svo saman við 2 tsk fennelfræ og lárviðarlaufin og kryddaðu með salti og pipar. Náðu upp suðunni, settu lok yfir og inn í ofn. Látið malla í 3-4 klst. Kannið stöðuna á klst fresti.

Gnocchi

4. Á meðan kjötið er í ofninum er tími fyrir gnocchi og grænmetið. Sjóðið 500 g kartöflur, skrælið svo strax og setjið í kæli, helst í sólarhring ef tími gefst.

5. Gerið pláss á borðinu og pressið svo kartöflurnar í kartöflupressu. Dreifið aðeins úr því á borðið, sáldrið svo 60 g hveiti og 60 g kartöflumjöli yfir. Myndið smá brunn og brjótið eggið ofan í brunninn.

6. Dreifið svo úr egginu með gaffli þannig að það blandist við hveitið og kartöflumjölið. Hnoðið þetta svo saman, bætið hveiti við eftir þörfum ef of klístrað.

7. Myndið smá lengju og skiptið deiginu í 6 parta. Rúllið svo hvern part og myndið lengju. Skerið svo lengjuna niður í um eins cm búta. Sáldrið hveiti yfir og færið yfir á bakka. Það er flott að þrýsta smá í miðjuna á hverjum bita til að mynda smá dæld.

Það má geyma þetta í kæli þar til rétt fyrir framreiðslu. Sjóðið á gnocchi í söltu vatni í 3 – 4 mínútur eða þar til bitarnir fljóta upp.

Grænmetið

8. Afhýðið 6 skarlottulauka, dýfið í sjóðandi vatn í nokkrar sekúndur brúnið svo á öllum hliðum í smjöri og ólífuolíu á pönnu. Setjið gulræturnar í pott með vatni og sjóðið í mínútu.

9. Finnið til lítið eldfast mót, setjið gulræturnar og laukinn í mótið, hellið smjörblöndunni af pönnunni yfir, smátt skorinn hvítlauk og nokkrar greinar af timian. Ég hellti smá hlynsírópi yfir og kryddaði með salti og pipar.

10. Bakið svo í ofni við 175 gráður í um 20 mínútúr.

11. Þegar kjötið er orðið lungnamjúkt og dettur í sundur auðveldlega þá takið þið það út. Veiðið kjötið uppúr og sigtið svo soðið frá yfir pönnu. Sjóðið soðið niður dálítið til að þykkja það.

Blandið loks grísakinnum saman við soðið ásamt gnocchi. Berið fram með bökuðu grænmeti og skreytið með steinselju.

Færðu inn athugasemd