Humar Mac & Cheese Darra Style

Já þú last rétt, Darra style. Mér tókst um daginn að gera ó svo magnað mac og cheese sem ég sagði vini mínum Ólafi Darra frá því því ég veit að hann og matur fara vel saman. Darri varð smá spenntur en benti mér svo á að besta mac & cheese sem hann hefur fengið var með humarhölum. Það þýðir bara eitt, já ég þarf að prófa það.

Ég ákvað að gera bara sömu uppskrift og síðast en ég reif meira af hvítlauk yfir ostastósuna og dró úr reykta ostinum. Í lokin hellti ég svo smjörhvítlauks gumsinu af pönnunni yfir allt saman.

Það sem þarf fyrir 5-6

  • 500 – 700g Rummo macarone pasta
  • 60g smjör
  • 4 mtsk hveiti
  • 2 mtsk kjúklingakraftur í duft formi
  • 1/2 tsk reykt papríka
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 500 ml nýmjólk
  • 200 ml rjómi
  • 1,5 bolli (kúfaður) rifinn þroskaður cheddar
  • 1,5 bolli (kúfaður) rifinn hollenskur gouda ostur
  • 1/3 bolli reyktur cheddar í sneiðum. Skorinn niður fínt
  • 2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 500 g humarhalar, skelflettir og garnhreinsaðir
  • Hellingur af smjöri til að steikja humarinn
  • Fersk steinselja, skorinn smátt

Aðferðin

Setjið vatn í pott og komið upp suðunni, saltið vatnið ríkulega. Sjóðið svo pasta (500g) þar til það er orðið al dente. Sigtið vatnið frá en geymið ca bolla af vatninu ef þið þurfið að þynna sósuna síðar.

Gerið smjörbollu. Bræðið smjör (um 60g) í potti á meðal hita, þegar það er farið að krauma smá þá pískið þið hveitinu (3-4 mtsk) saman við. Passið að hræra stöðugt þar til þetta er komið vel saman, ca 2 mínútur. Bætið svo kryddunum saman við, reyktu paprikunni (1/2 tsk), kjúklingakraftinum (2 mtsk) og hvítlauksduftinu (1 tsk). Hrærið stöðugt áfram. Passið að brenna ekki.

Hellið svo mjólkinni (um 500ml) hægt saman við og pískið stöðugt. Svo hellið þið rjómanum (um 200ml) samanvið. Náið svo upp léttri suðu og haldið áfram að píska þar til þetta er orðið nægilega þykkt til að hylja bakhlið á skeið. Þetta eru svona 4 mínútur.

Takið sósuna af hitanum og hrærið samanvið helming af rifna ostinum þar til osturinn er alveg bráðnaður. Kreistið einn hvítlauksgeira og blandið saman við. Bætið svo rest af osti samanvið og blandið vel saman og látið bráðna.

Bætið loks pastanu út í og veltið vel saman þannig að sósan hylji pasta vel. Ef þetta er of þykkt má nota pastavatnið til að þynna að vild.

Svo er það humarinn. Ég smjörsteikti hann bara eins og venjulega. Byrja á að taka hann úr skelinni og fjarlægja görnina. Svo setti ég helling af smjöri á pönnu og lét það bráðna á meðal hita. Kreisti nokkra hvítlauksgeira yfir og steikti svo humarinn. Passa að ofelda ekki samt. Ég saxaði svo steinselju og stráði yfir í lokin. Hellti svo humrinum og smjörinu á disk á meðan ég kláraði annað.

Setjið mac & cheese í fallega skál, blandið humarhölum varlega saman við. Hellið hvítlaukssmjörinu líka yfir og blandið. Loks stráið þið ferskri steinselju yfir og berið fram t.d. Með bragðmiklu hvítvíni. Geggjað. Darri fékk ekki að smakka samt því miður, hann er alltaf að þvælast erlendis en ég fékk fulltrúa hans Lovísu í mat í staðinn og hún gaf þessu 5 af 5 held ég.

Hugljúft Mac & Cheese eins og það gerist best

Ég hef alltaf þótt mac and cheese lúmskt gott en hef til þessa ekki prófað að gera það sjálfur. Jú einu sinni en það féll ekki í kramið hjá heimamönnum hér, ég veit ekki hvað klikkaði en ég reyndi þetta ekki aftur í langan tíma. Í kvöld hins vegar ákvað ég að prófa aftur því ég og Gunni vinur minn ákváðum að gera Texas style brisket en mac and cheese er einmitt klassískt meðlæti. Viti menn, þetta tókst fullkomlega. Hér er uppskrift eins og við gerðum þetta.

Það sem þarf fyrir 4

  • 300 g Rummo macarone pasta
  • 40g smjör
  • 2 mtsk hveiti
  • 1 mtsk kjúklingakraftur í duft formi
  • Rúmlega 1/2 tsk reykt papríka
  • Rúmlega 1/2 tsk hvítlauksduft
  • 300ml nýmjólk
  • 100 – 120 ml rjómi
  • 1 bolli (kúfaður) rifinn þroskaður cheddar
  • 1 bolli (kúfaður) rifinn hollenskur gouda ostur
  • 1/2 bolli reyktur cheddar í sneiðum. Skorinn niður fínt

Aðferð

Setjið vatn í pott og komið upp suðunni, saltið vatnið ríkulega. Sjóðið svo pasta (250g) þar til það er orðið al dente. Sigtið vatnið frá en geymið ca bolla af vatninu ef þið þurfið að þynna sósuna síðar.

Gerið smjörbollu. Bræðið smjör í potti á meðal hita, þegar það er farið að krauma smá þá pískið þið hveitinu (2-3 mtsk) saman við. Passið að hræra stöðugt þar til þetta er komið vel saman, ca 2 mínútur. Bætið svo kryddunum saman við, reyktu paprikunni (1/2 tsk), kjúklingakraftinum (3 mtsk) og hvítlauksduftinu (1/2 tsk). Hrærið stöðugt áfram. Passið að brenna ekki.

Hellið svo mjólkinni (um 300ml) hægt saman við og pískið stöðugt. Svo hellið þið rjómanum (100-120ml) samanvið. Náið svo upp léttri suðu og haldið áfram að píska þar til þetta er orðið nægilega þykkt til að hylja bakhlið á skeið. Þetta eru svona 3 -4 mínútur.

Takið sósuna af hitanum og hrærið samanvið helming af rifna ostinum þar til osturinn er alveg bráðnaður. Bætið þá rest af osti samanvið og blandið vel saman og látið bráðna.

Bætið loks pastanu út í og veltið vel saman þannig að sósan hylji pasta vel.

Fínt að bera fram í skál með smá graslauk klipptann yfir.

Ef þér líkar þessi uppskrift þá endilega skoðaðu humarútgáfuna hér.