Ég hef alltaf þótt mac and cheese lúmskt gott en hef til þessa ekki prófað að gera það sjálfur. Jú einu sinni en það féll ekki í kramið hjá heimamönnum hér, ég veit ekki hvað klikkaði en ég reyndi þetta ekki aftur í langan tíma. Í kvöld hins vegar ákvað ég að prófa aftur því ég og Gunni vinur minn ákváðum að gera Texas style brisket en mac and cheese er einmitt klassískt meðlæti. Viti menn, þetta tókst fullkomlega. Hér er uppskrift eins og við gerðum þetta.
Það sem þarf fyrir 4-5
- 250 g Rummo macarone pasta
- 40g smjör
- 2 mtsk hveiti
- 2-3 mtsk kjúklingakraftur í duft formi
- Rúmlega 1/2 tsk reykt papríka
- Rúmlega 1/2 tsk hvítlauksduft
- 300ml nýmjólk
- 100 – 120 ml rjómi
- 1 bolli (kúfaður) rifinn þroskaður cheddar
- 1 bolli (kúfaður) rifinn hollenskur gouda ostur
- 1/2 bolli reyktur cheddar í sneiðum. Skorinn niður fínt
Aðferð
Setjið vatn í pott og komið upp suðunni, saltið vatnið ríkulega. Sjóðið svo pasta (250g) þar til það er orðið al dente. Sigtið vatnið frá en geymið ca bolla af vatninu ef þið þurfið að þynna sósuna síðar.
Gerið smjörbollu. Bræðið smjör í potti á meðal hita, þegar það er farið að krauma smá þá pískið þið hveitinu (2-3 mtsk) saman við. Passið að hræra stöðugt þar til þetta er komið vel saman, ca 2 mínútur. Bætið svo kryddunum saman við, reyktu paprikunni (1/2 tsk), kjúklingakraftinum (3 mtsk) og hvítlauksduftinu (1/2 tsk). Hrærið stöðugt áfram. Passið að brenna ekki.
Hellið svo mjólkinni (um 300ml) hægt saman við og pískið stöðugt. Svo hellið þið rjómanum (100-120ml) samanvið. Náið svo upp léttri suðu og haldið áfram að píska þar til þetta er orðið nægilega þykkt til að hylja bakhlið á skeið. Þetta eru svona 3 -4 mínútur.
Takið sósuna af hitanum og hrærið samanvið helming af rifna ostinum þar til osturinn er alveg bráðnaður. Bætið þá rest af osti samanvið og blandið vel saman og látið bráðna.
Bætið loks pastanu út í og veltið vel saman þannig að sósan hylji pasta vel.
Fínt að bera fram í skál með smá graslauk klipptann yfir.